//
Helstu upplýsingar

Frelsisflokkurinn-logo-18-21
Listabókstafur: Þ
Staða: Nýtt framboð

Hver eru helstu stefnumál framboðsins?

Frelsisflokkurinn býður nú fram í fyrsta skipti í borgarstjórnarkosningum. Við erum þjóðlegt afl, stoltir af því að vera Íslendingar. Við berjumst gegn taumlausri alþjóðavæðingu og misheppnaðri fjölmenningarstefnu. Þjóðfrelsið og þjóðríkjahugsunin er ein af grunnstoðum flokksins. Flokkurinn er á móti ESB, við viljum segja upp Schengen og endurskoða EES með uppsögn í huga.

Engar gripaflutningalestir
Við erum á móti hugmyndum um svokallaða borgarlínu. Einkabíllinn þjónar hagsmunum borgarbúa best og tryggir sjálfstæði og frelsi einstaklingsins.

Greiðum fyrir umferð
Í stað borgarlínu er hægt bæta samgöngur í borginni með því að stækka stofnæðar, svo sem við Miklubraut og Sæbraut. Ráðast þarf í gerð Sundabrautar strax. Fækkum umferðartefjandi hindrunum, svo sem þrengingum gatna, tefjandi umferðarljósum og eyðileggjandi hraðahindrunum. Lækkum verulega fargjöld í strætó.

Rafbílavæðum Reykjavík
Höfuðborgin taki forystu á heimsvísu sem hátækniborg sjálfkeyrandi mengunarlausra ökutækja.

Hlúum að eldri borgurum og þeim sem greinast með alvarlega sjúkdóma
Opnuð verði skrifstofa sem heldur utan um þá sem glíma við alvarleg veikindi. Heimahjúkrun við þessa hópa verði efld. Hugað verði sérstaklega að því að þeir einstaklingar sem búa einir fái þá aðstoð sem þeir þurfa.

Skerum niður í yfirstjórn borgarinnar
Stjórnkerfis- og lýðræðisráð verði lagt niður. Fjölmenningarráð lagt niður. Mannréttindaráð lagt niður. Innviðagjald afnumið.

Enga mosku í Reykjavík
Frelsisflokkurinn vill sporna gegn Islamsvæðingu og hafnar fjölmenningu sem boðar undirgefni við Islam. Þess vegna viljum við að lóðaúthlutun til safnaðar múslima í Sogamýri verði afturkölluð þegar í stað. Að stækkunarheimildir ásamt byggingju bænakallsturns við Ýmishúsið til Salafistamúslima verði afturkallaðar. Að algert bann verði sett við að erlent fjármagn verði notað til moskubygginga.

Höfuðborgin verði ekki hælisgreni
Að borgin segi þegar í stað upp samningi við Útlendingastofnun sem sjálfkrafa skyldar Reykjavíkurborg til að útvega hundruðum hælisleitenda húsnæði, mitt í húsnæðiseklunni. Forgangurinn verði að hjálpa okkar fólki, áður en farið verður í að bjarga öllum heiminum.

Hvað vill framboðið gera í málefnum ungs fólks?

Menntamál
Borgin segi upp samstarfi sveitarfélaganna um miðstýrða kjarasamninga kennarastéttarinnar. Þá geti borgin tekið upp sjálfstæða kjarasamninga við kennara einstaka skóla og þannig komið sér út úr þessu steinrunna miðstýrða launakerfi.

Leikskólinn
Að öllum börnum verði tryggt leikskólapláss eða gæsla strax eftir að fæðingarorlofi foreldra lýkur. Að grunngjald leikskólans verði gjaldfrjálst og þetta gert í áföngum. Stefnt skuli að því að einkavæða leikskólana í áföngum.

Húsnæðismál
Skortur á íbúðum, hátt leiguverð og erfiðleikar við fasteignakaup er veruleiki margra ungra Reykvíkinga. Frelsisflokkurinn vill auka lóðaframboð og brjóta ný byggingarsvæði á Kjalarnesi, í Viðey, í Úlfarsárdal og víðar. Að efnt verði til hönnunarsamkeppni um byggingu á, að minnsta kosti, 3000 litlum einingaíbúðum í borginni fyrir ungt fólk þar sem fari saman lágt verð og gæði. Reykjavíkurborg lækki lóðarverð í slíkum tilfellum. Við styðjum séreignarstefnuna og viljum að lánshæfismatið verið tekið til endurskoðunar þannig að fleiri geti keypt sína fyrstu íbúð sjálfir. Frelsisflokkurinn styður líka frjáls leigufélög sem starfa á samvinnugrundvelli.

Önnur framboð - Reykjavík