Niðurstöður SkuggakoSninga fyrir alþingiskosningar 2024

Skuggakosningar #égkýs vitundavakningarinnar fóru fram 21. nóvember í framhaldsskólum um land allt. Kosningarnar fóru fram í 25 framhaldsskólum og voru skipulagðar þannig að þær endurspegluðu alvöru kosningar eins vel og verða mátti. Þetta er í fimmta sinn sem skuggakosningar eru haldnar á Íslandi. Kjörsókn var 34,9%

10.896 á kjörskrá

34,9% kjörsókn

228 auð og ógild

Fylgi flokka eftir ári

Fylgi eftir kjördæmum

Suðurkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Menntaskólinn á Ásbrú

Suðvesturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Fjölbrautarskólinn í Garðabæ og Menntaskólinn í Kópavógi

Norðausturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskóli Austurlands

Norðvesturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Fjölbrautarskóli Snæfellinga, Fjölbrautarskóli Vesturlands, Menntaskóli Borgarfjarðar og Menntaskólinn á Ísafirði

Reykjavíkurkjördæmi Norður

Framhaldsskólar í kjördæminu: Borgarholtsskóli, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Sund, Kvennaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn og Fjölbrautarskólinn við Ármúla

Reykjavíkurkjördæmi Suður

Framhaldsskólar í kjördæminu: Menntaskólinn við Hamrahlíð og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Skipting þingsæta

Fjöldi þingmanna ef miðað er við að landið sé eitt kjördæmi, enda taka skuggakosningarnar ekki tillit til búsetu kjósenda, heldur staðsetningu menntaskólans og fjöldi atkvæða eftir kjördæmum endurspeglar ekki íbúafjölda. Með tilliti til kjördæmaskiptingar og jöfnunarsæta væri niðurstaðan frábrugðin.

5 – Framsóknarflokkurinn
13 – Viðreisn
14 – Sjálfstæðisflokkurinn
4 – Flokkur fólksins
14 – Miðflokkurinn
4 – Píratar
9 – Samfylkingin