Skuggakosningar

Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa á Alþingi og munu endurspegla vilja nemenda um allt land. Skuggakosningar fara fram í fimmta sinn hér á landi þann 21. nóvember. Niðurstöður verða gerðar opinberar eftir að kjörstöðum lokar á kjördag alþingiskosninga, 30. nóvember.

kynslóðin sem kýs ekki?

Ungt fólk skilar sér síður á kjörstað og sú staðreynd ógnar bæði samfélagsstöðu þeirra og lýðræðinu. Í sveitarstjórnarkosningunum árið 2014 var kjörsókn eftir aldri skrásett í fyrsta sinn. Slökust var þátttaka ungs fólks á aldrinum 20-24 ára, var hún aðeins 45,4%. Lýðræðisátakið #égkýs varð til því ljóst var að bregðast þurfti við, svo ekki yrði alvarlegur lýðræðishalli á milli kynslóða.

Meginmarkmiðið #égkýs herferðarinnar er að efla lýðræðisvitund og hvetja ungt fólk til að kjósa eftir upplýstri ákvörðun í kjörklefanum í von um að kosningaþátttaka aukist. Kosningaþátttaka ungs fólks jókst í öllum aldurshópum í sveitarstjórnarkosningunum 2018. Kosningaþátttaka jókst einnig í öllum aldurshópum á milli alþingiskosninganna 2016 og 2017, en mest hjá yngstu kjósendunum eða um 9,5%. Þetta eru góðar vísbendingar um árangur #ÉgKýs og nú vitum við að þrátt fyrir að kosningaþátttaka sé enn almennt minni hjá yngri aldurshópum er þátttaka ungs fólks þó að aukast.

Kjörsókn eftir aldri í sveitarstjórnarkosningum

Kjörsókn eftir aldri í alþingiskosningum

Framhaldsskólanemendur kjósa í skuggakosningum um allt land!

Hvar fara skuggakosningar fram?

Skuggakosningar eða „skólakosningar“ eru settar upp eins og almennar kosningar. Megintilgangur þeirra er að þjálfa þá nemendur sem ekki hafa náð kosningaaldri í að kjósa og undirbúa þá sem hafa aldur til að kjósa í fyrsta sinn. Jafnframt fær ungt fólk reynslu í að skipuleggja og framkvæma hið lýðræðislega ferli kosninga.

Skuggakosningar verða haldnar í 30 framhaldsskólum samhliða alþingiskosningunum þann 21. nóvember. Niðurstöður verða ekki gerðar opinberar fyrr en öllum kjörstöðum hefur verið lokað á kjördag alþingiskosninga þann 30. nóvember.

Hvernig kýs ég?

  • Þú framvísar skilríkjum á kjörstað og færð kjörseðil.

  • Kosningin er leynileg og fer fram í einrúmi.

  • Þú merkir X fyrir framan það sem þú vilt kjósa. Mikilvægt er að gera engar aðrar merkingar á kjörseðilinn því þá telst atkvæðið ógilt. 

  • Að lokum brýtur þú kjörseðilinn saman þannig að letrið snúi inn og setur hann í kjörkassann.

Framkvæmd skuggakosninga

Til að efla lýðræðisvitund og hvetja ungt fólk til að kjósa eftir upplýstri ákvörðun í komandi alþingiskosningum eru allir framhaldsskólar hvattir til að taka þátt. Sú þátttaka felst í að halda lýðræðisviku 18.-21. nóvember sem endar á skuggakosningum. Nemendur eru hvattir til að kynna sér stefnumál flokkanna og borgararéttindi ungs fólks.

Mælst er til þess að nemendur (málfundar-, nemendafélög eða aðrir hópar innan skólans) skipuleggi og framkvæmi skuggakosningarnar með aðstoð kennara. Hér fyrir neðan er að finna handbók um framkvæmd skuggakosninga, kosningalög, kjörbók og kosningaleiðbeiningar.

Handbókin

Handbók um framkvæmd skuggakosninga.

Hlaða niður handbók 2024

Kosningalög

Kosningin fer fram samkvæmt lögum SÍF og LUF um framkvæmd skuggakosninga

Hlaða niður lögum um skuggakosningar 2024

kjörbók

Hér getur þú hlaðið niður kjörbókinni sem kjörstjórn á að fylla út.

Sækja kjörbók 2024

kosningaleiðbeiningar

Handbók um framkvæmd skuggakosninga.

Hlaða niður kosningaleiðbeiningum