Lýðræðisvikan

Lýðræðisvikan, 18.–21. nóvember 2024, gengur út á að efla lýðræðisvitund framhaldsskólanema á Íslandi.

Lýðræðisleikir

Leysið lýðræðisverkefni í skólastofunni.

Heimsókn frá flokkunum

Leysið lýðræðisverkefni í skólastofunni.

Skuggakosningar

Haldið skuggaskosningar og kannið afstöðu nemendanna.

Lýðræðisvika framhaldsskólanna

Lýðræðisvikan fer fram í framhaldsskólum landsins vikuna 18.–21. nóvember. Þá eru kennarar hvattir til að leggja fyrir lýðræðistengd verkefni og stuðla að stjórnmálaumræðu í kennslustundum. Lýðræðisvikan endar á skuggakosningum og eru nemendur hvattir til að taka upplýsta ákvörðun áður en gengið er til atkvæðagreiðslu. Nemendur geta kynnt sér stefnumál flokkanna og hvað þeir hyggjast gera í málefnum ungs fólks undir Framboðin. Nemendur eru hvattir til að bjóða flokkunum í heimsókn og skipuleggja t.d. málfund eða pallborðsumræður.

Gert er ráð fyrir að hver þátttökuskóli skipuleggi og útfæri sína lýðræðisviku eftir aðstæðum, getu og nemendafjölda. Hér að neðan eru dæmi/leiðbeiningar um það sem hægt er að gera.

Gagnabanki

Vefsíðu þessari er ætlað að virka sem gagnabanki fyrir lýðræðisfræðslu. Hafi skólar þegar kennsluefni sem hefur reynst vel eða einhverjar hugmyndir að lýðræðisverkefnum eru þeir hvattir til að framkvæma og deila með öðrum. Til þess getið þið sent verkefnin á egkys@neminn.is og verkefnið verður birt hér að neðan. Tekið verður fram frá hvaða skóla framlagið kemur.

Lýðræðisleikir og æfingar

Lýðræði á sér margar birtingarmyndir og einskorðast alls ekki við flokkapólitík og formlegar kosningar. Lýðræðislegar aðferðir eiga allsstaðar við, t.d. í kennslustofunni, í félagslífinu og á heimilinu.

Hér að neðan er að finna leiki og æfingar sem hægt er að nota í kennslustundum.

Heimsóknir frá fulltrúum flokkanna

Við erum svo heppin að Ísland er lítið land með stuttar boðleiðir. Ólíkt öðrum löndum þá er auðvelt að komast í beint samband við stjórnvöld og ræða beint við fólkið sem sækist eftir völdum.

Nemendafélög framhaldsskólanna eru hvött til að bjóða frambjóðendum í heimsókn í skólann, þar sem nemendur geta rætt við þá, spurt spurninga og komið sínum hugmyndum á framfæri.

Hér að neðan má finna þrjár mismunandi tillögur að framkvæmd heimsóknar fulltrúa flokkanna.

Retake this course?
Retaking this course from the beginning will reset all of your tracked progress.
Retake

Fjölmiðlalæsi í lýðræðissamfélagi

Er hægt að treysta öllu sem maður sér á TikTok? Er þetta (f)rétt? er æfing í því að greina hvort upplýsingar á samfélagsmiðlum séu réttar eða heiðarlegar. Þar skoðum við staðhæfingar sem eru settar fram á samfélagsmiðlum og hvernig maður getur skoðað hvort þær séu sannar.

Skuggakosningar

Lýðræðisvikunni lýkur með skuggakosningu, þar sem nemendur skólans kjósa á milli þeirra flokka sem hyggjast bjóða fram til Alþingis, í því kjördæmi sem skólinn er staðsettur.

Skuggakosningar verða haldnar í framhaldsskólum þann 21. nóvember en niðurstöður þeirra verða ekki gerðar opinberar fyrr en öllum kjörstöðum hefur verið lokað á kjördag alþingiskosninga þann 30. nóvember.