//

Niðurstöður skuggakosninga fyrir alþingiskosningar 2021

Skuggakosningar #ÉGKÝS vitundavakningarinnar fóru fram 25. september í framhaldsskólum um land allt.  Kosningarnar fóru fram í 26 skólum og voru skipulagðar þannig að þær endurspegluðu alvöru kosningar eins vel og verða mátti. Þetta er í fjórða sinn sem skuggakosningar eru haldnar í framhaldsskólum á Íslandi. Kjörsókn var 35.6%

9.670
á kjörskrá
35.6%
kjörsókn
390
auð og ógild

Fylgi flokka eftir árum

Fylgi eftir kjördæmum

Suðurkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Menntaskólinn á Ásbrú

Suðvesturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Menntaskólinn í Kópavogi.

Norðausturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu:  Framhaldskólinn á Laugum, Menntaskólinn á Akureyri,  Menntaskólinn á Egilsstöðum, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskóli Austurlands

Norðvesturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Menntaskóli Borgarfjarðar og Menntaskólinn á Ísafirði

Reykjavíkurkjördæmi norður

Framhaldsskólar í kjördæminu: Borgarholtsskóli, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Sund, Kvennaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn og Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Reykjavíkurkjördæmi suður

Framhaldsskólar í kjördæminu: Menntaskólinn við Hamrahlíð og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

  • Framsóknarflokkurinn (5)
  • Viðreisn (5)
  • Sjálfstæðisflokkurinn (15)
  • Píratar (14)
  • Samfylkingin (11)
  • Vinstri græn (9)
  • Sósíalistaflokkur Íslands (4)

Skipting þingsæta

Fjöldi þingmanna ef miðað er við að landið sé eitt kjördæmi, enda taka skuggakosningarnar ekki tillit til búsetu kjósenda, heldur staðsetningu menntaskólans og fjöldi atkvæða eftir kjördæmum endurspeglar ekki íbúafjölda. Með tilliti til kjördæmaskiptingar og jöfnunarsæta væri niðurstaðan frábrugðin.