//

Niðurstöður skuggakosninga fyrir alþingiskosningar 2017

Skuggakosningar #ÉGKÝS vitundavakningarinnar fóru fram 12. október í framhaldsskólumskólum um land allt.  Kosningarnar fóru fram í 21 skóla og voru skipulagðar þannig að þær endurspegluðu alvöru kosningar eins vel og verða mátti. Þetta er í annað sinn sem skuggakosningar eru haldnar í framhaldsskólum á Íslandi. Kjörsókn var 32%

11.327
á kjörskrá
32%
kjörsókn
369
auð og ógild

Fylgi flokka eftir ári

Fylgi eftir kjördæmum

Suðurkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu, Menntaskólinn að Laugarvatni, Fjölbrautaskóli Suðurlands og Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Suðvesturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Menntaskólinn í Kópavogi.

Norðausturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Menntaskólinn á Akureyri, Framhaldsskólinn á Húsavík og Verkmenntaskóli Austurlands

Norðvesturkjördæmi

Framhaldsskólar í kjördæminu: Fjölbrautaskóli Vesturlands, Menntaskóli Borgarfjarðar,  Menntaskólinn á Ísafirði og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Reykjavíkurkjördæmi norður

Framhaldsskólar í kjördæminu: Kvennaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn og Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Reykjavíkurkjördæmi suður

Framhaldsskólar í kjördæminu: Menntaskólinn við Hamrahlíð,  Verzlunarskóli Íslands og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

  • Framsóknarflokkurinn (6)
  • Viðreisn (5)
  • Sjálfstæðisflokkurinn (19)
  • Píratar (8)
  • Samfylkingin (6)
  • Vinstri græn (19)

Skipting þingsæta

Fjöldi þingmanna ef miðað er við að landið sé eitt kjördæmi, enda taka skuggakosningarnar ekki tillit til búsetu kjósenda, heldur staðsetningu menntaskólans og fjöldi atkvæða eftir kjördæmum endurspeglar ekki íbúafjölda.

Ef að ekki væri miðað við að landið væri eitt kjördæmi er líklegt að Miðflokkurinn hefði fengið kjördæmakjörinn þingmann í Norðvesturkjördæmi, þrátt fyrir að ná ekki upp í 5% lágmark.