Fljótsdalshérað
Fljótsdalshérað er sveitarfélag á Austurlandi sem varð til 1.nóvember 2004 við sameiningu Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Við sameiningunavarð til fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi, næst á eftir Fjarðabyggð. Flestir búa í þéttbýlinu á Egilsstöðum eða ríflega 2.875 manns.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs er skipuð 9 bæjarfulltrúum af fjórum listum. Fulltrúar Áhugafólks um sveitarstjórnarmál á Fljótsdalshéraði, Sjálfstæðisflokks og Héraðslistans, samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði mynda meirihluta í sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs kjörtímabilið 2014-2018. Forseti sveitarstjórnar er Sigrún Blöndal fulltrúi Héraðslistans.
Framboðin sem sjá má hér fyrir neðan eru þau sem #ÉgKýs hafði upplýsingar um þegar kjörseðlar fyrir skuggakosningar fóru í prentun að morgni 9. apríl.