Borgarbyggð
Borgarbyggð er sameinað sveitarfélag á Vesturlandi með nokkrum þéttbýliskjörnum; Borgarnesi, Bifröst og Varmalandi. Sveitarfélagið er með þeim stærri á Íslandi, sem stendur við sjó og byggir afkomu sína ekki á sjávarútvegi.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar er skipuð 9 bæjarfulltrúum, af fjórum listum, sem kjörnir eru af íbúum sveitarfélagsins. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylking mynda meirihluta í sveitarstjórn Borgarbyggðar kjörtímabilið 2014-2018. Forseti sveitarstjórnar er Björn Bjarki Þorsteinsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Framboðin sem sjá má hér fyrir neðan eru þau sem #ÉgKýs hafði upplýsingar um þegar kjörseðlar fyrir skuggakosningar fóru í prentun að morgni 9. apríl.